Innihurðir
Brúnás smíðar gæða innihurðir sem eru einstakar að því leyti að þær eru með sérvöldum viðarspóni til að falla vel að Brúnás-innréttingum. Þannig geta hurðirnar á heimilinu verið hluti af innréttingum í eldhúsi, á baði, í forstofu eða hvar sem er á heimilinu. Þetta á ekki síður við um vinnustaði, þar sem vel fer saman að hafa hurðir með sama spón og viðaráferð og innréttingarnar sem þær standa við.