Eldhúsinnréttingar

Sagt er að leiðin að hjörtum okkar sé í gegnum magann, svo eldhúsið hlýtur að vera hjarta heimilisins.

Eldhúsið sem þungamiðja heimilisins spilar líklegast hvað mikilvægastan þátt í að skapa daglegar tengingar við alla fjölskyldumeðlimi heimilisins. Allt frá fíflaskap við baksturinn með krökkunum þar sem hveitið skvettist um eldhúsbekkinn, þar sem heimalesturinn fer fram meðan eldaður er kvöldmaturinn eftir annasaman dag eða einfaldlega griðarstaðurinn þar sem morgunbollinn verður extra ljúffengur með blaða lestrinum áður en allir vakna og ganga inn í daginn.

Við viljum að handunnu eldhúslausnir okkar gangi lengra en út á virkni og skipulag, heldur setji tóninn fyrir rýmið í heild sinni. Þar sem stíll og hagkvæmni renna óþvingað inn í heimilislífið sjálft og passi saman.

Fáðu faglega ráðgjöf

Bókaðu tíma með ráðgjafa með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Við tökum einnig vel á móti gestum í sýningasali okkar í Reykjavík og á Egilsstöðum með bros á vör.